27 Janúar 2012 12:00

Tilkynnt var um tjón á bíl á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun en stungið hafði verið á öll dekk hans. Eigandi bílsins hafði ákveðinn aðila grunaðan og sagði þetta sennilega snúast um ástir og afbrýðisemi. Mál af sama toga hafa áður komið á borð lögreglu.