25 Júlí 2022 12:30

Vegna slyss í Brúará í Biskupstungum um miðjan dag í gær 24.07.2022.

Við rannsókn og upplýsingaöflun lögreglu hefur komið fram að hinn látni, kanadískur ríkisborgari búsettur í Bandaríkjunum hafi komið syni sínum til bjargar sem fallið hafði í ána. Við það missti hann sjálfur fótanna og barst niður eftir ánni eina 400 – 500 metra þar sem þyrla LHG fann hann látinn. Drengurinn slapp án meiðsla. Áin er á þessu svæði straumþung og mjög köld.

Lögreglan vill koma á framfæri þökkum til allra, viðbragðsaðila og annara vegfaranda sem komu að og aðstoðuðu í tengslum við slysið.

Lögreglan vinnur að áframhaldandi rannsókn málsins.