27 September 2009 12:00

Um miðjan dag var 22 ára gömul kona handtekin í Keflavík grunuð um að hafa þá skömmu áður veitt 5 ára gamalli stúlku áverka með eggvopni.

Stúlkan hlaut stungusár á brjóstkassa. Hún var flutt til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og síðan á Landsspítalann þar sem hún verður undir eftirliti. Líðan hennar var eftir atvikum.

Lögreglan á Suðurnesjum mun senda frá sér ítarlega fréttatilkynningu um atvikið á morgun.