13 Febrúar 2024 16:33

Undanfarna daga hefur verið hringt í fjölmörg íslensk símanúmer frá símanúmerum sem flest eru skráð frá Sri Lanka eða Lúxemborg og hefjast því á +352 eða +94. Um svikasímtöl er að ræða og brýnt að svara þeim ekki. Tilgangurinn með símtölunum er að komast yfir fjármuni þess sem hringt er í. Hvetjum við fólk almennt til að svara ekki símtölum frá erlendum númerum sem fólk kannast ekki við. Þá bendum við einnig á að hringja ekki til baka sé ósvarað símtal frá númerum sem þessum.

Í símtölunum kynnir sig aðili sem segist vera frá fjárfestingafélagi (e. Trading company) sem nýlega hóf störf á Íslandi. Í framhaldinu er fólk beðið um að skrá sig inn á heimasíðu sem gefin er upp. Ef fólk hefur svarað símtali sem þessu þá skiptir máli hvort aðilunum hafi verið gefnar upp upplýsingar, t.a.m. með skráningu inn á heimasíðuna. Svo virðist sem í framhaldinu fái fólk beiðnir í farsíma sinn með lykilorðum sem það skal alls ekki gefa upp til aðilanna.

Ef fólk telur sig hafa orðið fyrir svikum vegna þessa og telur sig hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa strax samband við sinn viðskiptabanka og fá þar ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu.