8 September 2015 17:21

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst nokkra þjófnaði í miðborginni undanfarna daga og komið hinum stolnu munum aftur í réttar hendur. Þar á meðal eru fjögur málverk, sem var stolið frá hóteli, en þau fundust síðar á tveimur stöðum í borginni. Karl á fertugsaldri var handtekinn vegna málsins og játaði hann sök. Skúlptúr var stolið úr Hallgrímskirkju og fannst listaverkið við húsleit nokkru síðar, en maður á sextugsaldri hefur gengist við brotinu. Íslenskum kvenþjóðbúningi var stolið úr Ráðhúsinu um síðustu helgi, en búningurinn er kominn í leitirnar og var honum skilað í réttar hendur í morgun. Kona á sextugsaldri játaði aðild að málinu. Þá hefur lögreglan endurheimt verkfæri, sem var stolið úr húsnæði í vesturbænum og telst málið sömuleiðis upplýst.