24 Maí 2007 12:00

Átján ára piltur var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu í hádeginu í gær en sá virti hvorki stöðvunarskyldu né notaði öryggisbelti. Piltinum var bent á að hér væri um að ræða brot á umferðarlögum og var hann m.a. beðinn um nota öryggisbelti eftirleiðis. Pilturinn lét ábendingar lögreglumanna sem vind um eyru þjóta því þegar hann hélt aftur af stað var öryggisbeltið enn óspennt. Lögreglan veitti piltinum þá stutta eftirför uns hann lét sér segjast og nam staðar. Ljóst má vera að þessi framkoma mun kosta piltinn nokkuð í formi sekta og er vonandi að hann sjái loksins að sér en þessi ungi ökumaður hefur áður verið staðinn að umferðarlagabrotum. Hann hefur þrívegis verið stöðvaður fyrir hraðakstur og einu sinni fyrir að nota ekki öryggisbelti.

Tuttugu og sjö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Nokkrir ökumenn fyrir teknir fyrir hraðakstur en fjórir þeirra eiga ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Tveir voru stöðvaðir fyrir ölvunarakstur en bíll annars þeirra, tvítugs pilts, mældist á 121 km hraða á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ.