4 Júní 2020 08:09

Nú þegar ferðalög innanlands eru fram undan hjá stórum hluta þjóðarinnar er ekki úr vegi að rifja upp myndband frá Samgöngustofu þar sem fjallað er um nokkur atriði sem þarf að hafa í huga við framúrakstur og hvernig hægt sé að tryggja öryggi vegfarenda sem best. Að því sögðu minnum við alla vegfarendur á að fara varlega og sýna aðgát í umferðinni.