23 Maí 2019 09:34

Í dag verður áfram unnið við að fræsa og malbika í borginni og viðbúið að því fylgi einhver óþægindi fyrir vegfarendur, sem eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitssemi. Vinnuflokkar verða því víða að störfum, m.a. á Hallsvegi í Grafarvogi (á milli Langarima og Gullinbrúar/Strandvegar), í Vatnagörðum (á milli Sundagarða og Sægarða) og í Mjölnisholti og á Lindargötu. Vegfarendur eru áfram beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Vegna framkvæmda eins og þessara berast lögreglu gjarnan kvartanir, en í gær höfðu margir samband við embættið og lýstu yfir ónægju sinni með framkvæmdir á Kleppsmýrarvegi og töfum á umferð sem því fylgdi. Úr varð að lögreglan fór á vettvang og var þar við umferðarstjórn í nokkra klukkutíma, en vonandi verður ástandið betra á og við þær götur þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar í dag.