Lögreglustöðin á Egilsstöðum
Lyngási 15
700 Egilsstaðir
Þjónustusími: 444 0640
Netfang: austurland@logreglan.is
Fax: 444 0601
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Námskeið var í gær á vegum almannavarna í umdæminu og almannavarnadeildar RLS, haldið í húsakynnum aðgerðastjórnar. Á því voru fulltrúar frá björgunarsveitum, sveitarfélögunum, slökkviliðunum, Rauða krossinum, Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og lögreglu. Áherslan var á skipulag þegar kemur að náttúruvá, aðgerðastjórn og vettvangsstjórn, auk þess sem látið var reyna á samstarf og samstillingu eininga með skrifborðsæfingu. Námskeiðið stóð frá tíu að morgni til fimm síðdegis og gekk vel.
Næsta námskeið/æfing á vegum almannavarnanefndar Austurlands er fyrirhugað í lok maí.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Þann 31.03. sl. hvarf nokkurt magn af svona koparvír af vegslóða skammt frá Vök baths við Egilsstaði. Koparvírinn er um 1 cm á þykkt.
Ef einhver hefur orðið var við svona vír á vergangi eða hefur einhverjar upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við lögreglu í síma 444-0600 eða í tölvupósti austurland@logreglan.is
... Sjá meiraSjá minna
5 CommentsComment on Facebook
Hví skyldi Lögreglan á Austurlandi vera að fara með ósannindi? Vök baths er EKKI á Egilsstöðum, og hefur aldrei verið. það er staðreynd, hvað sem hverjum finnst um það.
Ja eitt er víst að Hringrás kaupir þetta ekki, en það eru fleiri að versla svona
10 mm í þvermál??
Einar Skúli Atlason
Fck'ers!!!!😔
Viljum benda þeim fjölmörgu sem hyggjast horfa á körfuknattleikinn í íþróttahúsinu á Egilsstöðum núna á eftir að leggja bílum sínum á bílastæðum já eða koma gangandi ef það er mögulegt. Góða skemmtun. ... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook