Lögreglan á Austurlandi Lögreglan á Eskifirði

Lögreglustöðin á Eskifirði

Strandgötu 52
735, Eskifirði
Þjónustusími: 444 0600
Netfang: austurland@logreglan.is
Fax: 444 0601

Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

Lögreglan á Austurlandi Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons

Nú þegar hitamet eru slegin á Austurlandi hvetur lögregla þá ökumenn er enn kunna að vera með nagladekk undir bifreiðum sínum að gera þar bragarbót á svo ekki komi til viðurlaga.

Þannig minnkum við auk þess slit á vegum og bætum loftgæði.

Gerum þetta saman.
... Sjá meiraSjá minna

4 CommentsComment on Facebook

Það er nú bara flughált í repjuolíu blæðingum núna 😡🕳️

Það var nú bara hálka fyrir rúmri viku og kannski haustar snemma 🤣🤣🙈

Sveinn Gunnar er ennþá á nöglum 😬

Svo gæti komið fljúgandi hálka með kvöld fluginu

2 mánuðum síðan

Við tökum undir með kollegum okkar á Norðurlandi eystra og viljum minna ykkur á að fara varlega.

Ekki er allt gull sem glóir sagði einhversstaðar og ef lofað er skjótum gróða er rétt að staldra við og hugsa málið áður en fjármunir eru sendir inn á "reikninga" erlendis, þeir fjármunir eru þá horfnir um leið og færslan hefur verið framkvæmd.

Tölvupóstar og skilaboð eru oft á tíðum send í nafni íslenskra stofnana og fyrirtækja sem virka trúverðug en þegar betur er skoðað sést t.d. netfang sem passar ekki við viðkomandi.Viðvörun, fjársvik

Lögreglan varar við ítrekuðum tilraunum til ýmis konar fjársvika.

Talsvert er um tölvupósta og skilaboð til einstaklinga og fyrirtækja. Einnig berast símtöl frá símanúmerum sem líta út fyrir að vera íslensk og eru jafnvel skráð á íslenska aðila. Þessi símtöl geta verið frá brotamönnum og viljum við vara ykkur við slíkum gylliboðum.

Ef það hljómar of gott til að vera satt þá er það líklegast ekki satt.

Dæmi um þetta er þegar fólki er talin trú um að það eigi fjármuni á lokuðum reikningum t.d. „köldu veski“ með rafmynt. Fólk þurfi bara að millifæra smá upphæð til að losa þetta fjármagn og viðkomandi býðst til að aðstoða og kemst þannig yfir kortaupplýsingar.

Annað dæmi um fjársvik eru tölvupóstar sem leiða fólk inn á netsíður þar sem gefa á upp persónuupplýsingar, kortanúmer eða annað. Dæmi um svona tölvupóst er hér meðfylgjandi.

Við vörum sérstaklega við því er þegar að aðili í gegnum skilaboð eða símtal býður fram aðstoð sína og vill fá fólk til að deila skjá í tölvu eða öðru tæki með viðkomandi en þetta er kallað ,,screen-sharing“. Með þessari leið kemst svikarinn yfir miklar upplýsingar um viðkomandi og fær mögulega aðgang að tölvupósti, heimabanka o.fl. Af þessu getur hlotist mikið tjón.

Við vekjum athygli á eftirfarandi hlekk sem gæti nýst ykkur til að skoða og kynna ykkur þessi mál:

www.logreglan.is/fraedsla/internetid/

Verum á varðbergi
... Sjá meiraSjá minna

Við tökum undir með kollegum okkar á Norðurlandi eystra og viljum minna ykkur á að fara varlega. 

Ekki er allt gull sem glóir sagði einhversstaðar og ef lofað er skjótum gróða er rétt að staldra við og hugsa málið áður en fjármunir eru sendir inn á reikninga erlendis, þeir fjármunir eru þá horfnir um leið og færslan hefur verið framkvæmd.

Tölvupóstar og skilaboð eru oft á tíðum send í nafni íslenskra stofnana og fyrirtækja sem virka trúverðug en þegar betur er skoðað sést t.d. netfang sem passar ekki við viðkomandi.
Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram