7 Apríl 2015 13:52

Brot 21 ökumanns var myndað á Álfaskeiði í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, á móts við Álfaskeið 94-100. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Álfaskeiði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.