21 Ágúst 2015 14:58

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 73%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.