11 Nóvember 2015 14:14

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, á móts við Austurbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.