10 Maí 2016 09:03

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, við Ystasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Ölduseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.