4 Júní 2016 17:14

Í morgun varð fisvél vélarvana og þurfti að nauðlenda við bæinn Úlfarsfell. Við nauðlendinguna flæktist annað hjól vélarinnar í vír rafmagnsgirðingar með þeim afleiðingum að nef vélarinnar stakkst í jörðina og hún hafnaði á hvolfi. Tveir menn voru um borð í vélinni. Annar kenndi sér ekki meins en hinn fékk skurð á höfuðið og var fluttur á slysadeild til nánari skoðunar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka málið.