12 Nóvember 2018 20:29

Á undanförnum dögum hefur verið umfjöllun í fjölmiðlum um mikilvægi þess að laga verkferla hjá lögreglu til að tryggja rétt viðbragð við afleiðingum sykursýki. Upphaf þessarar umræðu má rekja til pistils þar sem fjallað er um meint ófagleg vinnubrögð lögreglu þegar 17 ára piltur var færður á lögreglustöð eftir skóladansleik í sumarlok 2017. Vegna þessara skrifa vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taka fram að málið hefur þegar verið rannsakað af embætti Héraðssaksóknara sem ákvað þann 8. maí sl. að hætta rannsókn.  Í rökstuðningi héraðssaksóknara fyrir ákvörðuninni kemur fram að til rannsóknar var  hvort lögreglumenn sem að málinu komu hefðu gerst sekir um brot gegn almennum hegningarlögum. Til gundvallar ákvörðuninni voru m.a. upptökur úr eftirlitsmyndavélum í fangamóttöku og fangagangi lögreglustöðvarinnar sem sýna samskipti lögreglu og piltsins. Kemur einnig fram að ekki verði annað séð en að verklagi, sem ber að viðhafa þegar um börn er að ræða, hafi verið fylgt hjá lögreglu við afgreiðslu málsins. Þá kemur fram að forráðamanni piltsins var tilkynnt um handtökuna 12 mínútum eftir að komið var með piltinn á lögreglustöð, en þá voru liðnar 24 mínútur frá því að pilturinn var handtekinn. Ákvörðun héraðssaksóknara var ekki kærð til ríkissaksóknara.