26 Nóvember 2018 08:27

Brot 117 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 904 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átján óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.