18 Júlí 2019 13:32

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 15. júlí til fimmtudagsins 18. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 15.253 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 120. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.