27 Desember 2006 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík um jólin. Flestir voru stöðvaðir seint á Þorláksmessukvöld eða aðfaranótt aðfangadags. Þá stöðvaði lögreglan för nokkurra ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en í þeim hópi var 17 ára piltur sem fékk ökuskírteini í lok síðasta mánaðar. Sá var nýverið tekinn fyrir ofsaakstur í borginni og missti þá prófið en heldur samt áfram akstri. Sama á reyndar við um fleiri ökumenn sem voru stöðvaðir um jólin. Þá tók lögreglan þrjá ökumenn sem höfðu aldrei öðlast ökuréttindi.

Allnokkrir voru stöðvaðir fyrir hraðakstur. Þ.á.m. rúmlega tvítugur karlmaður en bíll hans mældist á 132 km hraða á Vesturlandsvegi við Grafarholt en þar er leyfður hámarkshraði 80. Þetta var á aðfangadagskvöld en hvort maðurinn var að flýta sér í eða úr jólaboði skal ósagt látið. Viðurlög við þessu umferðarlagabroti eru 75 þúsund króna sekt og ökuleyfissvipting í einn mánuð.