11 September 2020 12:46

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um andlát barns í Garðabæ á þriðjudag þá vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu koma því á framfæri að um er að ræða mikinn harmleik, en ekkert bendir til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað.

Lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar um málið og biður jafnframt fjölmiðla um að veita aðstandendum svigrúm til að syrgja á þessum erfiðu tímum.