1 Október 2020 14:28

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, á móts við Langholtsveg 166. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 22 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.