24 Janúar 2021 14:24
Mikill viðbúnaður var við Kleifarvatn í hádeginu eftir að áhyggjufullur vegfarandi tilkynnti um mann sem gekk út í vatnið kl. 12.10. Fjöldi viðbragðaðila hélt þegar á vettvang, en um 50 mínútum eftir að tilkynningin barst kom maðurinn sjálfur upp úr vatninu austan megin og var hann heill á húfi. Maðurinn mun hafa verið við köfun í Kleifarvatni og var hann einn á ferð.
Sem fyrr segir var mikill viðbúnaður vegna málsins, en að aðgerðunum komu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og Landhelgisgæslan.