1 Febrúar 2021 11:53

Brot 53 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Móa á Kjalarnesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 381 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Fimm óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.