19 Ágúst 2007 12:00

Siglingar tveggja báta voru stöðvaðar utan við Reykjavíkurhöfn um miðnætti í gær. Engin haffærisskírteini voru til staðar en skipstjóri annars bátsins var jafnframt undir áhrifum áfengis. Varðskipsmaður sá um að sigla fleyi hans til hafnar en umræddur skipstjóri var sömuleiðis án skipstjórnarréttinda.