23 September 2007 12:00

Rannsókninni á fíkniefnamálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði fyrir helgi miðar vel en yfirheyrslur yfir sakborningunum halda áfram. Í Noregi var einn aðili handtekinn vegna málsins en sá er laus úr haldi. Í Færeyjum voru tveir aðilar handteknir vegna málsins. Annar er laus úr haldi en hinn var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Ákvörðun um beiðni um framsal hefur ekki verið tekin. Í Danmörku voru tveir aðilar handteknir í tengslum við rannsóknina en báðir eru lausir úr haldi.

Framkvæmd var nákvæmnisleit í skútunni sem kom við sögu í ofangreindu máli. Ekki fundust frekari fíkniefni í henni.