31 Október 2007 12:00

Brot átta ökumanna voru mynduð á Hofsstaðabraut á móts við Hörgslund í Garðabæ í dag. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru sextán ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 48 km/klst. Þarna er 30 km hámarkshraði en sá sem hraðast ók var mældur á 56. 

Eftirlit lögreglunnar á Hofsstaðabraut kom í kjölfar ábendinga frá íbúum í hverfinu sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað.