25 Nóvember 2021 13:00

Skráð voru 857 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í október og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2021.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða á meðan tilkynningum um innbrot fækkaði örlítið. sem Það sem af er ári hafa borist um níu prósent fleiri tilkynningar um þjófnaði en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 130 tilkynningar um ofbeldisbrot í október og fjölgaði þessum tilkynningum töluvert á milli mánaða. Ekki hafa borist jafn margar tilkynningar um ofbeldisbrot síðan í mars 2021. Álíka margar tilkynningar bárust um heimilisofbeldi í október og í september en alls voru skráðar 58 tilkynningar í október. Það sem af er ári hafa borist um 10 prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust 11 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í október og fækkaði þessum beiðnum á milli mánaða.

Tilkynningum um eignaspjöll fjölgaði lítillega á milli mánaða á meðan tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fækkaði töluvert.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða en ekkert stórfellt fíkniefnabrot var skráð í október. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Ekki hafa borist jafn margar tilkynningar þar sem ökumaður er grunaður um ölvun við akstur síðan í október 2019.

Í október voru skráð 792 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 27 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.