28 Janúar 2022 14:37

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í vesturátt, á móts við Vesturgötu 32. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.