4 Febrúar 2022 10:08

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, við Laugardalslaug. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 254 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sólskin, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.