18 Febrúar 2022 14:42

Tveir karlar á þrítugsaldri voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til föstudagsins 25. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skotárás í Grafarholti í síðustu viku.

Rannsókn málsins miðar vel.