3 Mars 2022 14:25

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Hvassahraun. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 430 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 125.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.