11 Maí 2022 09:32

Brot 48 ökumanna voru mynduð í Austurkór í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurkór í austurátt, að Almannakór. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 83 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar í Austurkór er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sólskin og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.