14 Október 2008 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Grafarvogi sl. föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í vesturátt, að Strandvegi. Á hálftíma, fyrir hádegi,  fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94.