23 September 2022 13:15

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Drekavöllum í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Drekavelli í vesturátt, við Hraunvallaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Drekavöllum er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.