27 Febrúar 2009 12:00

Brot 217 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 19. – 26. febrúar. Vöktuð voru 15.191 ökutæki og því ók mjög lítill hluti ökumanna, eða rúmlega 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tíu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 108.