24 Mars 2009 12:00

Þrjátíu og sjö ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Strandgötu í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 37 ökumanna mynduð á Strandgötu en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, nærri Hellubraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 422 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði, gangbraut og vegþrenging. Tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 76.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Strandgötu. Niðurstaðan á milli ára er nákvæmlega sú sama, bæði hvað varðar brotahlutfall og meðalhraða hinna brotlegu.