7 Maí 2009 12:00

Fimm voru staðnir að hraðakstri á Gagnvegi í Reykjavík í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 5 ökumanna mynduð á Gagnvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Grundarhúsum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Gagnvegi og þá óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (56 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 64 km/klst.