6 Maí 2009 12:00

Sautján voru staðnir að hraðakstri á Mosavegi í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 17 ökumanna mynduð á Mosavegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Vallengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 101 ökutæki þessa akstursleið og því óku 17% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Einn ók á 70 km hraða eða meira en sá mældist á 79.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Mosavegi og þá óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var aðeins minni umferð um götuna (85 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 62 km/klst.