2 Júní 2009 12:00

Fjörutíu og einn var staðinn að hraðakstri á Suðurströnd á Seltjarnarnesi á föstudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 41 ökumanns myndað á Suðurströnd en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, við Steinavör. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því óku 24% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 81.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Suðurströnd. Þá var leyfður hámarkshraði 60 og því er ekki hægt að bera niðurstöðurnar saman.