16 Október 2009 12:00

Brot 195 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í austurátt, að húsi Orkuveitunnar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 472 ökutæki þessa akstursleið og því ók stór hluti ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjörutíu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.