12 Nóvember 2009 12:00

Brot 78 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í vesturátt, að Strandvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 267 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tólf óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.