27 Janúar 2010 12:00

Rúðubrjótur var handtekinn í Kópavogi í nótt. Sá hafði af ókunnum ástæðum brotið rúðu í fjölbýlishúsi og var kominn inn í  sameignina þegar lögreglan kom á vettvang og handtók hann. Rúðubrjóturinn, karl á fertugsaldri, var í annarlegu ástandi.