11 Mars 2010 12:00

Karl á þrítugsaldri slasaðist á fæti þegar verið var að ferma sendibifreið í austurborginni í gærmorgun. Á bílnum er vörulyfta og klemmdist fótur mannsins undir henni. Meiðsli mannsins voru ekki talin alvarleg.