3 Desember 2014 14:11

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Hverfisgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hverfisgötu í austurátt, á móts við Hverfisgötu 88. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 143 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Hverfisgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.