19 Maí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í austurborginni um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 125 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á  gróðurhúsalampa og annan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Húsráðandi, karl á fimmtugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.