22 Október 2010 12:00

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, rétt við gatnamót Kársnesbrautar og Hábrautar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 234 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.