6 Júní 2011 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 50-54% (2009 og 2010) en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 43-45 km/klst.