24 Október 2011 12:00

Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 19-28 ára og ein kona, 36 ára, en einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Fíkniefni fundust í þremur bílanna.