7 Febrúar 2012 12:00

Um helgina voru tólf ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Fimm voru teknir á laugardag og sjö á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 17-34 ára og þrjár konur, 21-28 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.