16 Apríl 2012 12:00

Eins og áður fylgist lögreglan á höfuðborgarsvæðinu með stefnuljósanotkun ökumanna. Ekki virðist vanþörf á því margir fara að ósekju mjög sparlega með stefnuljós en allmargir ökumenn voru stöðvaðir í umferðinni um helgina vegna þessa, þ.e. gáfu ekki stefnuljós þegar við átti. Til glöggvunar er minnt á 31. gr. umferðarlaga þar sem fjallað er um merki og merkjagjöf og segir m.a. orðrétt; (stefnuljós) skal gefa tímanlega og á greinilegan og ótvíræðan hátt, áður en stefnu ökutækis er breytt, snögglega dregið úr hraða þess eða það er stöðvað. Merkjagjöf skal hættt, þegar hún á ekki lengur við.

Flestir hinna ofangreindu voru stöðvaðir í Ánanaustum en þetta voru aðallega ökumenn í kringum tvítugt. Á þessum sama stað hefur jafnframt borið á hraðakstri en enginn var þó tekinn fyrir þær sakir að þessu sinni.